Námskeið um fjöltyngi og móðurmál verður haldið föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst undir yfirskriftinni The Treasure of Languages. Öllum kennurum í skóla- og frístundastarfi er boðið að skrá sig. Námskeiðið er haldið í Gerðubergi og í Hólabrekkuskóla og er liður í samstarfi skóla- og frístundasviðs við samtökin Móðurmál.
Aðalfyrirlesari er Deirdre Kirwan skólastjóri Scoil Bhride Cailíní í Dyflinni. Meirihluti nemenda í þeim skóla eða 8 af hverjum tíu eru tvítyngdir og með ólíkan menningarbakgrunn. Deirdre Kirwan hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar og nýsköpun í fjölmenningarlegri kennslu. Hún er jafnframt eftirsóttur fyrirlesari.
Meðal annarra fyrirlesara á námskeiðinu eru Toshiki Toma, Renata Pratusyte, Rósa Björg Jónsdóttir, Kriselle Suson Gagatin, Bibiam M. Gonzales Rodríguez, Flor Santos Martins Pereira, Fríða B. Jónsdóttir og Renata Emilsson Peskova. Námskeiðsgjald er 2000 kr.