Námskeið í Brennu Njáls - sögu

""

Í Njáls sögu rís íslensk sagnalist hæst. Handritafjöldi sögunnar ber vott um vinsældir hennar og sennilega er sagan Íslendingum hjartfólgnust allra Íslendingasagna. 

Mannlýsingar sögunnar eru hrífandi og til marks um það er að Flosi, sem brennir Njál og syni hans inni, heldur reisn sinni í sögulok. Sumir telja persónusköpun hans afrek „höfundar“. - Hver man ekki eftir Gunnari og tilsvörum Hallgerðar?

Kristín Jónsdóttir hefur kennt fornsagnanámskeið jöfnum höndum á Aflagrandanum og í Bókasafni Seltjarnarness á undanförnum árum. Nú sameinar hún kennsluna. Á Aflagranda er unnið „án landamæra“ og þar eru allir velkomnir, óháð búsetu. Þessi lausn hugnast stjórnendum félagstarfs í báðum þessum sveitarfélögum vel.

Kennt verður á miðvikudögum kl. 16-18.

6 skipti fyrir jól: 4. nóv., 11. nóv., 18. nóv., 25. nóv., 2. des. og 9. des.

Verð er 10.000 krónur. Hægt er að skrá sig hjá kennaranum sjálfum í  tölvupósti (kristinj@mr.is) en einnig á Aflagrandanum í síma 411 2702 og hjá Kristínu Hannesdóttur umsjónarkonu Félagsstarfsins  á Seltjarnarnesi.