Nám er leikur einn - ráðstefna um elstu leikskólabörnin

Skóli og frístund

""

Föstudaginn 23. október verður haldin ráðstefna um menntun elstu leikskólabarnanna undir yfirskriftinni Nám er leikur einn. Ráðstefnan er haldin í samstarfi RannUng og skóla- og frístundasviðs og verður á Grand hóteli. 

Tilgangur ráðstefnunnar er að varpa ljósi á inntak, aðferðir og samfellu í námi barna á mörkum tveggaj fyrstu skólastiganna og skoða á hvern hátt leikur og nám fléttast saman sem árangusrík námsleið. Meðal annars verður horft til rannsókna og umræðu um þessi mál í alþþjóðlegu samhengi og leitað eftir sjónarmiðum foreldra, barna og leikskólakennara.

Dagskrá 

  • 8:30-8:45 Setning ráðstefnu - Helgi Grímsson, sviðstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
  • 8:45-9:00 Tónlistaratriði - Börn úr leikskólanum Hofi syngja nokkur lög
  • 9:00-9:15 Að vinna við að leika sér - Hugleikur Dagsson, listamaður
  • 9:15-9:55 Pedagogies for educational transition: Balancing play and preparation for school - Sue Docket, prófessor í menntunarfræðum ungra barna við Charles Sturt Háskólann í Albury, Ástralíu og gestaprófessor við Menntavísindasvið HÍ
  • 10:00-10:30 Veitingar
  • 10:30-11:00 Til hvers er leikurinn gerður? – Hugleiðingar leikskólamanns - Ásmundur Kristberg Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri í Ægisborg
  • 11:00-11:30 Förunautar nýfrjálshyggju og markaðsvæðingar: Um möguleg áhrif stefnumótunar á starfshætti leikskóla - Kristín Dýrfjörð leikskólakennari og dósent við Háskólann á Akureyri
  • 11:30-11:45 Umræður á borðum
  • 11:50-12:05 „Hvað lærðir þú í dag, vinur?“ Hvernig sonur minn lærði allt sem hann kann - Gunnar Ingi R. Sveinsson foreldri 5 ára leikskólabarns og kerfisstjóri Icelandair hótels
  • 12:05-12:20 Sjónarmið barna: Kennarar segja sögur stundum við matarborðið, það er gaman - Auður Ævarsdóttir sérfræðingur hjá tölfræði og rannsóknarþjónustu skóla- og frístundasvið Reykjavíkur

Skáning á ráðstefnuna

Auglýsing um ráðstefnuna.