Hinn árlegi Morgunn í matjurtagarði Grasagarðsins verður haldinn næsta laugardag, 30. maí, kl. 11 - 13.
Þá gefst gestum og gangandi tækifæri til að spyrja og spjalla við garðyrkjufræðinga Grasagarðsins og félaga og starfsfólk Garðyrkjufélags Íslands um allt sem viðkemur ræktun krydd- og matjurta; meðal annars sáningu, útplöntun, umhirðu og uppskeru.
Café Flóra verður með heitt piparmintute á könnunni. Allir eru velkomnir.