Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt áætlun um forgangsröðun og kostnaðargreiningu á tillögum starfshóps um móðurmálskennslu barna með annað móðurmál en íslensku.
Tillögurnar sem settar verða í forgang varða tilraunaverkefni til tveggja ára um ráðningu tveggja móðurmáls/farkennara í grunnskólum, aukið fjármagn til túlkaþjónustu í skóla- og frístundastarfi, fræðslu til kennara og starfsfólks um vinnu með fjölbreytt tungumál og mikilvægi móðurmálsins og bætta upplýsingagjöf og fræðslu til foreldra af erlendum uppruna.
Hlutverk móðurmáls/farkennara verður annars vegar að kenna móðurmál nemenda og hins vegar að styðja við nám tví- og fjöltyngdra grunnskólanemenda í íslensku skólastarfi.
Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna verkefnanna sem lagt er til að verði sett í forgang sé kr. 24.289.880 á árunum 2015-2016.
Í fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir fjármögnun til þessara verkefna.
Í fjárhagsáætlun skóla- og frístundasviðs fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir fjármögnun til þessara verkefna.
Sjá hér til hægri skýrslu starfshóps um móðurmálskennslu.