Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar er haldinn hátíðlegur í dag, 9. maí. Setningarathöfn fjölmenningardagsins hófst við Hallgrímskirkju kl. 13 en að henni lokinni fór fjölmenningarskrúðganga af stað áleiðis til Ráðhúss Reykjavíkur.
Fjöldi fólks tók þátt í göngunni og réð litagleðin ríkjum en margir þátttakendur klæddust fallegum þjóðbúningum hinna ýmsu landa. Markmiðið með hátíðahöldunum að fagna fjölbreyttri menningu borgarsamfélagsins. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og má með sanni segja að hún hafi öðlast sess í hugum borgarbúa enda setur hún skemmtilegan blæ á borgarlífið. Í Ráðhúsinu er fjölþjóðlegur markaður og fjölbreytt skemmtidagskrá er í boði bæði í Iðnó og Tjarnarbíói. Gleðilegan Fjölmenningardag!