Íbúar í miðborginni nefna hraðahindranir við norðaustanvert horn Hólavallakirkjugarðs, hraðahindrun á Barónsstíg og þrengingu á gatnamótum Grettisgötu og Vitastígs en íbúar miðborgar leggja til hugmyndir fyrir 73,5 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015.
Meðal fleiri hugmynda í miðborginni er að setja upp flotbryggju með stökkpalli við Ylströndina í Nauthólsvík, aparólu við Austurbæjarskóla og fjölga ruslafötum í miðborginni. Þetta eru einungis sex af sautján verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betri hverfi 2015.
Þau sautján verkefni sem kosið verður um eru metin á 89 milljónir króna en til framkvæmda eru 24 milljónir króna í hverfapotti miðborgarinnar.
Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.