Áhugasamt starfsfólk úr skólum í Breiðholti hittust á menntabúðum í Hólabrekkuskóla og kynntu sér nýja upplýsingatækni í skólastarfi.
Kennarar í Hólabrekkuskóla kynntu möguleika upplýsingatækni í ýmsum skólaverkefnum, s.s. þrívíddarprentara og verkefni sem tengjast notkun hans. Kennarar á yngra stigi kynntu vefsíður og hugbúnað sem nýtist í kennslu barna með annað tungumál en íslensku og í byrjendalæsi. Þá var forritunarkennsla í skólanum kynnt, en í Hólabrekkuskóla fá allir nemendur í 1.-7. bekk slíka kennslu.
Góðir gestir komu líka í menntabúðirnar, m.a. úr Kelduskóla og leiksskólanum Ösp og kynntu ýmis spennandi verkefni með upplýsingatækni sem þar fer fram. Meðal þess sem mátti fræðast um var forritið OSMO sem nýtist bæði leiksskóla- og grunnskólabörnum. Bíll sem stýrður er af spjaldtölvu vakti t.d. mikla athygli, svo og myndabækur og verkefni með kvikum myndum. Fab Lab í Eddufelli sýndi líka árangur af skapandi starfi og gestum bauðst að prófa Oculus Rift sýndarveruleikagleraugu og fara í þrívíða rússíbanareið.
Það var samdóma álit allra að þetta hefði verið vel heppnað framtak sem allir hefðu haft gagn og gaman af og að nýtast muni vel í skóla- og frístundastarfi í Breiðholti.