Menningarmótsskólar skólaárið 2014/15

Skóli og frístund Mannlíf

""

Á Alþjóðadegi menningarlegrar fjölbreytni UNESCO er á ári hverju tilkynnt hvaða skólar séu Menningarmótsskólar. Sjö skólar eru Menningarmótsskólar í Reykjavík.

Þetta skólaárið voru það eftirfarandi skólar:

Leikskólinn Rofaborg, Leikskólinn Hólaborg, Leikskólinn Árborg, Leikskólinn Laugasól, Ingunnarskóli, Háteigsskóli og Landakotsskóli.

Verkefnið Menningarmót – fljúgandi teppi hefur verið innleitt í fjölmörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum í Reykjavík frá árinu 2008 og er víða orðið hluti skólastarfsins. Styrkleikar og fjölbreyttir menningarheimar nemenda eru í forgrunni í þessu fjölmenningarlega verkefni Borgarbókasafns. Allir skólar geta tekið þátt í að þróa verkefnið og orðið Menningarmótsskólar að vori til.   Sjá hér hvernig hægt er að koma í hóp Menningarmótsskóla.

Menningarmót bjóða uppá gagnvirkt samstarf við foreldra sem eru ávallt mjög áhugasamir og virkir þátttakendur með börnum sínum. Aðferðin hefur nýst í vinnu með sjálfsmynd barna í leikskólum, samfélagsfræði, íslensku, tónlistar- og leiklistarkennslu í grunnskólum og lífsleikni í grunn- og framhaldsskólum og íslensku sem öðru tungumáli á fullorðinsstigi. Meðal markmiða verkefnisins er að þátttakendur geri sér ljóst að fjölbreytt menning, áhugasvið og ólík tungumál mynda mikilvægt menningarlegt litróf í samfélaginu öllu.

Á vefnum www.menningarmot.is sem var opnaður nýlega má finna margvíslegar upplýsingar um hvernig nota má Menningarmótin í kennslu og skólastarfi allt frá leikskóla til fullorðinsfræðslu. Vefurinn er einnig samráðsvettvangur fyrir hugmyndir og nýjar leiðir sem verða til í skólunum í tengslum við verkefnið og byggir hann á samstarfi  höfundans og skóla – og frístundasviðs Reykjavíkur. Menningarmótsverkefnið samræmist stefnu borgarinnar um fjölmenningarlegt skólastarf. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kennari og verkefnastjóri fjölmenningar í Borgarbókasafninu, er höfundur Menningarmótsins og hefur þróað verkefnið í kennslu bæði í Danmörku og á Íslandi.