Menningarmót - fljúgandi teppi er bæði verkefni og þverfagleg kennsluaðferð sem opnar nýja heima, líka í leikskólanum.
Á nýliðnum dögum var leikskólakennurum boðið upp á námskeið í þessari aðferð sem hefur verið innleitt í fjölmörgum leik -, grunn – og framhaldsskólum í Reykjavík á vegum Borgabókasafnsins frá árinu 2008
Menningarmót er þverfagleg kennsluaðferð í starfi með börnum og fullorðnum þar sem leitast er við að varpa ljósi á styrkleika og fjölbreytta menningarheima hvers og eins. Markmiðið er að hver og einn varpi ljósi á það sem skiptir hann mestu máli og vekur áhuga hans. Á hverju Menningarmóti eru allir í hópnum bæði þátttakendur og áhorfendur.
Á námskeiðinu fjallaði Kristín R. Vilhjálmsdóttir um hugmyndafræði verkefnisins, rætt var um gildi fjölmenningarlegs samfélags og samskipti frá ólíkum sjónarhornum og þá kynnti Kristín nýjan vef um verkefnið www.menningarmot.is sem opnaður var fyrr á árinu í samstarfi við skóla- og frístundasvið. Námskeiðinu lauk með því að þátttakendur settu upp sitt eigið menningarmót þar sem þeir gáfu öðrum innsýn í eigin bakgrunn, reynslu og áhugamál.
Á www.menningarmot.is er hægt að fræðast nánar um verkefnið auk þess sem skólum í borginni býðst að verða menningarmótsskólar. Fleiri námskeið fyrir kennara verða í boði á vorönninni.