Styrkur svifryks í andrúmsloftinu mældist 215 míkrógrömm á rúmmetra fyrstu klukkustundina árið 2015 í mælistöðinni við Grensásveg í Reykjavík. Sólarhringsstyrkurinn á nýársdag var hins vegar 19,8 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörk á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Oft hafa gildi svifryks í andrúmsloftinu verið margfalt hærri á þessum tíma.
Fyrstu klukkustundina árið 2014 mældist magn svifryks á Grensásvegi 245 míkrógrömm á rúmmetra, 2013 var styrkurinn 475, árið 2012 var hann 1014, árið 2011 var hann 284, og 2010 var hann 1575 og það ár var allur dagurinn yfir heilsuverndarmörkum eða 225. Styrkur svifryks fór átta sinnum yfir heilsuverndarmörk sólarhrings árið 2014 líkt og árin tvö á undan.
Í annarri loftgæðafarstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sem staðsett er við Völundarhús í Grafarvogi var meðaltalsstyrkur svifryks 44 míkrógrömm á rúmmetra fyrstu klukkustundina og í hinni farstöðinni sem staðsett er við Lagargötu við Mýrargötu var meðaltalsstyrkur svifryks 313 míkrógrömm á rúmmetra fyrstu klukkustundina.
Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum var styrkurinn 237. Sólarhringsgildin voru á öllum stöðvum undir 20 míkrógrömmum á rúmmetra, lægst í Grafarvogi. Ástæða fyrir lágum svifryksgildum þessi áramót er falin í veðurskilyrðum.