Síðasta sumar var hluti Laugavegarins málaður og má segja að það hafi slegið í gegn. Nú á að endurtaka leikinn og mála þann hluta Laugavegar sem er göngugata. Allir sem áhuga hafa geta tekið þátt.
Laugavegurinn verður málaður frá horni Vatnsstígs að gatnamótum Ingólfsstrætis. Vinnan hefst kl. 11.00 föstudaginn 26. júní. Nú er tækifærið til að mála bæinn rauðan, grænan, bleikan eða bláan.
Fólk er beðið um að koma með eigin rúllur og pensla en það verða líka aukapenslar og rúllur fyrir þá sem vilja taka þátt. Ekki verður málað á gangstéttar svo umferð gangandi og hjólandi vegfarenda ætti að ganga greiðlega fyrir sig. Þess má að lokum geta að á föstudag er spáð hæglætisveðri og 14 stiga hita.
Ábendingar vegna sumargatna má senda á netfangið sumargotur@reykjavik.is.