Málþingið Fuglar í borg

Umhverfi

""

Fuglavika í Reykjavík hefst með málþinginu FUGLAR Í BORG í Norræna Húsinu kl 13. laugardaginn 17. október.

Reykjavík-iðandi af lífi og Fuglavernd boða til Fuglaviku í Reykjavík, dagana 17.-23. október þar sem boðið verður upp á margs konar fræðsluviðburði með það að markmiði að vekja athygli á því fjölskrúðuga fuglalífi sem glæðir borgina allt árið um kring.

Fuglavika hefst með áhugaverðu málþingi um fuglalífið í borginni undir yfirskriftinni „Fuglar í Borg“.  á Málþinginu verður m.a. rætt um mikilvæg búsvæði fugla í Reykjavík og gildi þess að hafa fugla í okkar nánast umhverfi við nám og störf. Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

13:00  Málþingið sett 

13:10  Búsvæði fugla í Reykjavík - Snorri Sigurðsson, líffræðingur

13:45  Að ljósmynda fugla í Reykjavík  - Elma Rún Benediktsdóttir, fuglaljósmyndari

14:10  Fuglar og leikskólinn  - Sigrún Björg Ingþórsdóttir, leikskólastjóri 

14:35  Málþingi slitið  

14:40  Kaffi og með því  



Að málþinginu loknu verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Vatnsmýri kl. 15:00. Edward Rickson leiðir fuglaskoðunina.

Nánari upplýsingar um dagskrá Fuglaviku má finna á heimasíðum Reykjavík-iðandi af lífi og Fuglaverndar. Einnig er velkomið að hafa samband í síma eða tölvupósti.

Reykjavík-iðandi af lífi er fræðsluátak á vegum Reykjavíkurborgar um lífríki og náttúru borgarinnar. Sjá: vef Reykjavík-iðandi af lífi og Facebook. Sími: 411-8535. Netfang: idandi@reykjavik.is.

Fuglavernd eða Fuglaverndarfélag Íslands eru öflug félagasamtök á sviði náttúruverndar sem sérhæfa sig í að hlúa að hinu auðuga og dýrmæta fuglalíif landsins.

Sjá vefsíðu Fuglaverndar. Sími: 562-0477. Netfang: fuglavernd@fuglavernd.is.