Málþing um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun

Fjármál

""

Þann 18 september nk. klukkan 13-16  stendur Reykjavíkurborg fyrir málþingi um kynjaða fjárhags- og starfsáætlun í Tjarnarsal Ráðhússins.

Málþingið er hluti af þeim 100 viðburðum sem Reykjavíkurborg stendur fyrir vegna 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna. Meginþema málþingsins er staða kynjaðrar fjárhagsáætlunar í dag. Að auki verður því velt upp hvaða áhrif aukin pólitísk þátttaka kvenna hefur haft á rekstur hins opinbera.

Diane Elson einn fremsti sérfræðingurinn á þessu sviði verður aðalræðukona og fleiri sérfræðingar á þessu sviði taka þátt.

Aðgangur er ókeypis og ekki er þörf á því að skrá sig.  Allir velkomnir og í Tjarnarsal er gott aðgengi fyrir eldri borgara og fatlað fólk. Málþingið fer fram á ensku en allar kynningar verða birtar bæði á ensku og íslensku.

Dagskrá málþingsins.