Á morgun, laugardaginn 30. maí verða í gangi eftirtaldar malbiksframkvæmdir á götum í Reykjavík, ef veður leyfir. Nú í vikunni hefur m.a. verið malbikað á Nesvegi, Neshaga, Hofsvallagötu og Rofabæ.
Í fyrramálið, Laugardaginn 30. maí, mun Drafnarfell hefja fræsingu malbiks í Faxafeni, frá Suðurlandsbraut að Faxafeni 8.
Byrjað verður um klukkan 7 og verður götukaflinn lokaður á meðan. Í beinu framhaldi af því verður unnið við fræsingu á Fákafeni, frá Skeiðarvogi að Fákafeni. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður opnað aftur um hádegi.
Á sama tíma verður einnig unnið við fræsingu á Snorrabraut vestur (akrein til suðurs), frá Laugavegi að Grettisgötu. Lokað á meðan en neyðarbílum hleypt framhjá. Opnað verður aftur um hádegi.
Í beinu framhaldi af því verður unnið við fræsingu á Snorrabraut austur (akrein til norðurs), frá Karlagötu að Rampa að Skúlagötu. Eftir það mun Drafnarfell vinna við fræsingu á Snorrabraut austur (akrein til norðurs), frá Bústaðavegi að Egilsgötu.
Unnið verður fram eftir degi á Snorrabraut.
Malbikað verður í Ármúla, frá Háaleitisbraut að Vegmúla. Byrjað verður um klukkan 8 og verður götukaflinn lokaður á meðan og hafður lokaður fram eftir degi. Gatnamótin við Háaleitisbraut og Vegmúla eru bæði opin á meðan framkvæmdir standa yfir.
Alls verður malbikað fyrir 690 milljónir króna á vegum Reykjavíkurborgar í sumar og standa malbiksviðgerðir yfir víða í borginni um þessar mundir en götur voru illa farnar í vor eftir umhleypingasamt vetrarveður þar sem skiptist á frost og mikil bleyta vegna rigninga.