Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti fór fram í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 12. mars sl. Þar kepptu tíu ungmenni úr 7. bekk, en undankeppnir höfðu farið fram í öllum fimm skólunum hverfisins fyrr í vetur. Í fyrsta sæti varð Þór Hallgrímsson úr Hólabrekkuskóla, Þorbjörg Jónasdóttir úr Ölduselsskóla náði öðru sæti og í því þriðja var Diljá Björg Matthíasdóttir úr Fellaskóla. Allir nemendur fengu bókina Nokkur ljóð eftir Anton Helga Jónsson og fyrstu þrjú sætin fengu peningaverðlaun frá Íslandsbanka. Vinningshöfum og þátttakendum öllum er hér með óskað innilega til hamingju með góðan árangur.
Umsjónarmaður keppninnar var Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, kennsluráðgjafi í Þjónustumiðstöð Breiðholts. Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði.