Búist er við éljagangi og nokkrum vindi í kringum áraskiptin og af þeim sökum er ólíklegt að svifryksmengun verði yfir heilsuverndarmörkum. Borgarbúar eru hvattir til að huga vel að gæludýrum sínum, forðast hávaðamengun og fara með flugeldarusl á endurvinnslustöðvar.
Innflutningur á flugeldum fyrir áramótin er um það bil 544 tonn. Búist er við éljagangi og nokkrum vindi í kringum áraskiptin og af þeim sökum er ólíklegt að svifryksmengun verði yfir heilsuverndarmörkum þótt hávaðinn verði sá sami.
Svifryk fór átta sinnum yfir sólarhrings-heilsuverndarmörkin á árinu 2015. Sólarhringsstyrkur svifryks við Grensásveg var langt undir mörkum á fyrsta degi ársins eða 20 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsuverndarmörkin á sólarhring eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.
Um áramótin núna er útlit fyrir suðlæga átt og vindhraða 8-10 metra á sekúndu ásamt éljagangi. Ekki eru því miklar líkur á svifryksmengun á nýársnótt eins og veðurspáin lítur út nú.
Borgarbúar geta fylgjast með styrk svifryks á Loftgæði í Reykjavík en þar má sjá staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík. Tekið er mið af mælum í mælistöðinni á Grensásvegi þegar hugað er að loftgæðum um áramót.
Loftgæðafarstöðvar á vegum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur eru að þessu sinni staðsettar við frístundaheimilið Glaðheima Holtavegi 11 við Sæbraut og við leikskólann Stakkaborg, Bólstaðarhlíð 38 við Miklubraut.
Um 544 tonn af flugeldum
Heildarinnflutningur á flugeldum eykst áfram og er um 544 tonn að þessu sinni, samkvæmt upplýsingum frá Oddi Ólafssyni varðstjóra hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu. Árið 2014 voru um 502 tonn flutt til landsins, árið 2013 voru 406 tonn. Einnig er leyfilegt að selja flugelda sem fluttir voru inn 2014 og 2013.
Flugeldum fylgir rusl
2015 er kvatt og 2016 fagnað með rakettum og risatertum sem gjarnan eru áberandi í borgarumhverfinu daginn eftir. Borgarbúar eru því eindregið hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja því mikið magn flugeldaleifa fellur til og þarf að safna þeim saman og skila á endurvinnslustöðvar Sorpu þar sem tekið er við þeim. Ósprungnum flugeldum skal skila í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvar Sorpu sem opna laugardaginn 2. janúar klukkan tólf.
Hávaði
Hávaði vegna flugelda verður oft mikill. Foreldrar ættu að gæta að börnum sínum því þau eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir hávaða og dýraeigendur að dýrum sínum. Sum dýr geta orðið hrædd þegar flugeldar eru sprengdir í borginni. Æskilegt er að safnast saman fjarri húsum og sprengja á opnum svæðum. Fólk sem er viðkvæmt fyrir svifryki og hávaða ætti að vera innandyra þegar mest gengur á um miðnætti og loka gluggum.
Brennur
Söfnun í þær tíu áramótabrennur sem verða í Reykjavík hófst 28. desember og kemur efnið meðal annars frá fyrirtækjum. Einungis hreint timbur má fara á brennurnar og er bannað að setja þar unnið timbur, plast og gúmmí. Eldur verður borinn að köstunum kl. 20.30 á gamlárskvöld á öllum stöðum nema tveimur. Á Úlfarsfelli verður tendrað kl. 15.00 um daginn og í Skerjafirði verður eldur borinn að kestinum kl. 21.00
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur eftirlit með brennunum ásamt Lögreglunni og Slökkviliðinu á Höfðuborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur jafnframt eftirlit með hreinsun á brennustað.