Í febrúar 1928 fórst togarinn Jón forseti út af Stafnnesi. Fimmtán skipverjar fórust og 10 komust af. Mörg heimili misstu fyrirvinnuna og tóku kvenfélög sig saman og stofnuðu Mæðrastyrksnefnd til að koma einstæðum mæðrum til hjálpar.
Jón forseti fórst út af Stafnnesi aðfaranótt 27. febrúar árið 1928. Skipið var að koma vestan úr Jökuldjúpi og var ætlunin að fara austur á Selvogsgrunn. Sendu skipverjar út neyðarskeyti og komu nokkur skip á staðinn en aðstæður voru þannig að erfitt var að bjarga skipverjum. 15 fórust og 10 björguðust. Mörg heimili misstu fyrirvinnu og mæður með mörg börn lentu í vanda og gátu ekki séð fyrir heimilinu. 20. apríl 1928 tóku 10 kvenfélög höndum saman og stofnuðu Mæðrastyrksnefnd. Fyrstu árin barðist Mæðrastyrksnefnd einkum fyrir réttlátri og mannúðlegri félagsmálalöggjöf í þágu einstæðra mæðra og barna.
Mæðrastyrksnefnd stendur nú fyrir ljósmyndasýningu á gönguás Ráðhússins til minningar um sjóslysið sem markaði upphafið að hjálparstarfi Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Mæðrastyrksnefnd, sem hefur starfað allar götur síðan, er sjálfstæð stofnun sem byggir afkomuna á stuðningi velunnara sinna. Nefndin úthlutar fjárhagslega illa stöddum matvælum og fatnaði, einkum þar sem eru börn. Með jólaúthlutunum er leitast við að létta undir með heimilum við að halda jól eins og flestir óska sér með veislumat og gjöfum. Nefndin veitir fermingarstyrki og styrki til barna til að taka þátt í sumarnánskeiðum. Menntunarsjóður Mæðrastyrksnefndar styrkir konur til náms sem á sínum tíma duttu út úr skólakerfinu. Afrakstur af sölu mæðradagsblómsins rennur í menntunarsjóðinn. Mæðrastyrksnefnd byggir starfsemi sína á sjálfboðaliðum.
Að baki Mæðrastyrksnefnd eru nú sjö kvenfélög og flestir sjálfboðaliðanna eru fulltrúar þeirra.