Laugardaginn 18. júlí klukkan 15.00 verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur sýning á fjölbreyttum verkum Erlings Jónssonar, myndhöggara.
Á sýningunni verða brjóstmyndir og vangamyndir af þekktum Íslendingum og Norðmönnum ásamt margvíslegum verkum úr leir, bronsi, steini, stáli, kopar og tré.
Sýningin er haldin í tilefni 85 ára afmælis listamannsins á þessu ári, en hann hefur verið búsettur í Noregi um áratuga skeið. Sýningin er öllum opin og stendur til 7. ágúst næstkomandi.