Líkar þér við þig?

Velferð Skóli og frístund

""

Líkar þér við þig? Spurning sem er yfirskrift  fundar hjá Náum áttum, opnum samstarfshópi um fræðslu og forvarnamál. Fundurinn fjallar um sjálfsmynd og forvarnir. Hann er miðvikudaginn 21. október klukkan 8.15 til 10.00. Fundurinn er haldinn á Grand Hóteli, Sigtúni 38.

Frummælendur eru Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og Skóla, sem heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni Sjálfsmynd barna – snjallir foreldara eða snjalltæki. Bragi Sæmundsson, sálfræðingur fjallar um jákvætt sjálfstal  og Harpa Þórðardóttir, MA sálfræðiráðgjöf og HAM ráðgjafi í Foreldrahúsi, heldur erindi sem heitir Aukin sjálfsþekking, aukin lífsgæði.

Fundarstjóri er Andrea Ýr Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.400 krónur og innifalið í því er morgunverður.

Dagskrá fundarins