Umræðufundur umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar um miðborgina var fjölsóttur og lifandi en hann fór fram á Kjarvalsstöðum 13. október kl. 20:00 á kaffihúsinu.
Ferðamannamiðborgin var til umræðu í fundarröð sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir ásamt Hjálmari Sveinssyni, formanni umhverfis- og skipulagsráðs 13. október klukkan 20:00 á Kjarvalsstöðum á Klambratúni. Er miðborgin fyrir ferðamenn, íbúa eða alla?
Miðborg Reykjavíkur er allt í senn miðborg menningar, veitinga, verslunar og mannlífs. Hún er einnig hverfi og heimkynni íbúa og vinsæll áfangastaður ferðamanna. Á fundinum 13. október var m.a. spurt: Hvernig getum við skapað miðborg sem er áhugaverð fyrir borgarbúa, innlenda og erlenda ferðamenn? Gestir fundarins, Guðrún Jóhannesdóttir verslunarmaður í Kokku á Laugavegi, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir framkvæmdastjóri Icelandair hótela og Jón Kaldal miðborgarbúi og ritstjóri Iceland Magazine ásamt Hjálmari Sveinssyni ræddu um miðborgina frá ýmsum sjónarhólum.
Eftir stuttar framsögur spjallaði Hjálmar Sveinsson við gesti kvöldsins í 20 mínútur og eftir það var opnað fyrir umræður úr sal.
Í aðalskipulagi Reykjavíkur er fjallað um miðborgina út frá mörgum sjónarhornum, þar stendur t.d. „Ferðamannamiðborgin/ Miðborgin er fjölsóttasti ferðamannastaður landsins. Langflestir erlendir ferðamenn á Íslandi sækja miðborgina heim og nýta sér fjölbreytt tilboð hennar og tækifæri til ólíkrar upplifunar“. „Verslunarmiðborgin/ Miðborgin er verslunarmiðja höfuðborgarinnar. Í miðborginni eru líflegustu verslunargötur landsins. ". „Veitingamiðborgin/ Miðborgin er hjarta veitingamenningar landsins. Í miðborginni er landsins mesta fjölbreytni og þéttleiki veitingastaða.“
Fundurinn var tekinn upp og sendur út í beinni útsendingu á netinu.
Heiti fyrri funda í röðinni eru: Hver á borgina? Er borgin heilsusamleg? Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu? Hver eru áhrif borgarumhverfis á hamingjuna? Hvaða máli skiptir náttúran í borgarumhverfi? Markmiðið er að færa umræðu um skipulags- og umhverfismál í vítt og breitt samhengi. Leitað er eftir gagnrýnni og hressilegri umræðu þar sem ólík sjónarmið og reynsluheimar mætast á málefnalegum grunni.