Líf og fjör á Stóra leikskóladeginum

Skóli og frístund

""

Stóri leikskóladagurinn stendur nú sem hæst í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíó en þetta er án efa líflegasta fagstefna leikskólastarfsfólks á landinu. 

Í Tjarnarsal Ráðhússins má skoða margt af því besta sem gert er í leikskólastarfi á landinu en hátt í þrjátíu leikskólar sýna þar árangur af margvíslegu þróunarstarfi. Þá er Akureyru gestasveitarfélag höfuðborgarinnar á þessari stefnu og sýnir m.a. vinnu við læsis í leikskólum. Stóri leikskóladagurinn er nú haldinn í sjöunda sinn en hann er nýttur til símenntunar þar sem leikskólakennarar miðla þekkingu sinu í milli og fræðast um niðurstöður rannsókna í leikskólafræðum. Þá skemmta leikskólabörn gestum og gangandi á sviðinu í Tjarnarsal Ráðhússins. Sýningin er öllum opin en dagskrá lýkur kl. 16.30 í dag. 

Sjá dagskrá Stóra leikskóladagsins.