Líf og fjör í félagsmiðstöðvunum

Skóli og frístund

""
Líf og fjör verður í félagsmiðstöðvum borgarinnar í dag þegar gestum og gangandi ver boðið í heimsókn til að kynnast starfseminni. 
Miðvikudaginn 4. nóvember ver Félagsmiðstöðvadagurinn haldinn hátíðlegur í félagsmiðstöðvum fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Markmið dagsins er að vekja athygli á því starfi sem fer fram í félagsmiðstöðvunum og bjóða gestum og gangandi að kynnast starfi þeirra með eigin augum. ÞETTA MÁ! Í FÉLAGSMIÐSTÖÐINNI er yfirskrift dagsins að þessu sinni.



Félagsmiðstöðvadagurinn er haldinn á öllu landinu fyrir tilstilli SAMFÉS, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi. Dagurinn á þó rætur sínar að rekja til Reykjavíkur og hefur verið haldinn hátíðlegur þar frá 2005. Dagskrá félagsmiðstöðvanna verður fjölbreytt í tilefni dagsins en þar má bæði sjá hefðbundin viðfangsefni í opnu starfi félagsmiðstöðva sem og sérstakar uppákomur tileinkaðar félagsmiðstöðvadeginum.
 
Í félagsmiðstöðinni Gleðibankanum sem starfar í miðborginni skora unglingar á foreldra í spurningakeppni, farið verður í pógó, borðtennis og Fifa auk þess sem kaffi verður á könnunni fyrir gesti og gangandi.
 
Í félagsmiðstöðinni Frosta í Vesturbænum ætlar Pathfinderklúbburinn að kynna hlutverkaleiki, sælkeraklúbburinn að bjóða upp á heimalagaðan brjóstsykur, spilaklúbburinn stýrir skemmtilegum spilum og margt fleira spennandi verður þar í gangi.
 
Unglingar úr félagsmiðstöðinni Púgyn í Grafarvogi ætla að kynna starfið fyrir gestum í máli og myndum og þar verður einnig hægt að taka þátt í happadrætti ásamt því að Skrekksatriði Kelduskóla verður frumsýnt. 
 
Í félagsmiðstöðinni Holtinu í Norðlingaholti er samhliða félagsmiðstöðvadeginum haldið upp á afmæli Holtsins og þar ætla BMX BRÓS að koma og sýna listir sínar í tilefni dagsins.


Í Tíunni í Árbæ munu unglingar sýna framlag félagsmiðstöðvarinnar í hönnunarkeppninni Stíl, vera með veitingasölu, arineld og kósýheit.
 
Félagsmiðstöðin Hundrað&ellefu í Breiðholti mun bjóða gestum að kynna sér starfsemina og í tilefni af 40 ára afmæli félagsmiðstöðvarinnar Fellahellis, sem síðar varð að félagsmiðstöðinni Hundrað&ellefu, verður einnig boðið upp á afmælisköku.
 

Dagskrár og opnunartíma allra félagsmiðstöðvanna í Reykjavík og heimilisföng má finna á Facebook- síðum þeirra og heimasíðum.