Leikskólinn Mýri fær grenndarsvæði

Skóli og frístund

""

Leikskólinn hefur fengið fallegan vettvang fyrir umhverfismennt og útinám. 

Fyrir skemmstu gerði leikskólinn Mýri samning við Reykjavíkurborg um grenndarsvæði í nágrenni skólans. Markmið samningsins er að skapa vettvang fyrir umhverfismennt og útinám í nágrenni skólans ásamt því að efla tengsl við nærumhverfi skólans og styrkja umhverfisvitund.



Svæðið sem jafnan nefnist Holtið meðal barnanna á Mýri er staðsett í „litla Skerjafirði“ á milli stúdentagarða Háskóla Íslands og Reykjavíkurflugvallar. Svæðið er stórkostlegt til útináms og leikja enda má finna skóg á svæðinu, stór grjót sem hægt er að príla í, gjótur og síðast en ekki síst dásamlega polla þegar rignir. Svæðið er eitt af fáum í Reykjavík þar sem sjá má ummerki eftir síðustu ísöld enda grjótið þar sorfið eftir ísaldarjökulinn og ummerkin nokkuð greinileg.



Undirritun samningsins er hluti af grænfánastefnu leikskólans en átthagar hafa verið í brennidepli síðustu tvö árin hjá skólanum. Leikskólinn er nú að sækja um sinn þriðja grænfána.