Leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi hefur nú formlega verið lokað og rekstri hætt.
Starfsemi leikskólans Sjónarhóls var hætt um síðustu mánaðamót en hann tók til starfa haustið 1999 þegar mikill barnafjöldi var í Grafavogi.
Síðustu ár hefur börnum í Húsahverfi og Grafarvogi almennt fækkað mjög og af þeim ástæðum hafði leikskólinn verið vannýttur til nokkurra ára.
Öll börn sem voru í Sjónarhóli hafa byrjað leikskóladvöl í öðrum skólum að ósk foreldra.
Starfsmönnum leikskólans eru þökkuð störf, en þeir voru nýlega kvaddir með blómum og konfekti.