Leiðakerfisbreytingar í Reykjavík vegna alhliða samgöngumiðstöðvar á U-reit

Samgöngur

""

Óskað er eftir umsögnum um tillögur stýrihóps um leiðakerfisbreytingar í Reykjavík vegna samgöngumiðstöðvar við Umferðarmiðstöðvarreit (BSÍ) .

Reykjavíkurborg hefur þá framtíðarsýn að á Umferðarmiðstöðvarreit (BSÍ) við Hringbraut rísi samgöngumiðstöð fyrir samgöngur á landi. Markmiðið er að samgöngumiðstöð í Reykjavík verði lifandi og áhugaverður viðkomustaður, sambærilegur við aðallestarstöðvar í miðborgum erlendis.

Þarna verði m.a.:

  • Meginskiptistöð almenningssamgangna innan höfuðborgarsvæðisins og upphafs-  og endastöð almenningssamgangna út fyrir svæðið.
  • Upphafs- og endastöð almenningssamgangna milli Reykjavíkur og alþjóðaflugvallar.
  • Upphafs- og endastöð fjölda hópferðabifreiða.
  • Tengipunktur við aðra ferðamáta (hjólreiðar, skyndibíla, leigubíla, gangandi umferð, bílaleigubíla og einkabíla).

Skýrsla stýrihóps.

Tillaga að breytingum.

Ætla  má  að  samanlagt  fari  um  5 - 10 þús.  manns  um  samgöngumiðstöðina  og  lóð hennar á  venjulegum degi við opnun hennar. Reikna má með að sá fjöldi vaxi umtalsvert á næstu árum ef  spár um  aukinn  fjölda  ferðamanna  sem  heimsækja  landið,  spár  um  íbúafjölgun  og framtíðaráform um fjölgun þeirra sem nýta sér almenningssamgöngur ganga eftir.
 
Stýrihópur  um  leiðakerfisbreytingar  í  Reykjavík  vegna  alhliða  samgöngumiðstöðvar  á  umferðarmiðstöðvarreit  (U-reit)  var  skipaður  með  erindisbréfi  dags.  21.  nóvember  2014.  Í erindisbréfinu segir m.a.  að hópurinn sé skipaður til að fylgja eftir áframhaldandi þróun alhliða samgöngumiðstöðvar á U-reit og halda áfram þeirri vinnu sem þegar hefur verið unnin vegna endurskoðunar leiðakerfis almenningssamgangna. Hlutverk stýrihópsins sé að fara yfir og rýna í fyrirliggjandi tillögur að  leiðakerfisbreytingum,  samræma  hugmyndir  og  leitast  við  að  ná  sameiginlegri niðurstöðu um breytingar á leiðakerfi tengt uppbyggingu samgöngumiðstöðvar á U-reit.
 
Stýrihópinn skipuðu eftirtaldir:
 
Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi, formaður; Eva Indriðadóttir umhverfis- og skipulagsráði; Herdís Anna Þorvaldsdóttir umhverfis- og skipulagsráði og Svafar Helgason umhverfis- og skipulagsráði.
 
Til ráðgjafar og samstarfs voru Einar Kristjánsson og Ragnheiður Einarsdóttir hjá Strætó bs. og Ólafur Bjarnason samgöngustjóri Reykjavíkur. Með hópnum vann Þorsteinn R. Hermannsson,  samgönguverkfræðingur hjá Mannviti.