Laugardaginn 21. mars verður opnuð ný sýning í Landnámssafninu í Aðalstræti 16 sem ber heitið Landnámssögur – arfur í orðum. Sýningin opnar kl.16, aðgangur 1000 krónur.
Á þessari sýningu gefur að líta mörg hundruð ára gömul handrit sem rekja sögu fyrstu landnema Íslands. Ein dýrmætasta eign íslensku þjóðarinnar eru handritin sem varðveitt eru hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Það er mikil heiður fyrir Reykjavíkurborg að geta boðið gestum að skoða sérvalin handrit sem segja sögu landnáms í Reykjavík. Með sýningunni gefst jafnframt kærkomið tækifæri til að bera saman þann fróðleik og vitnisburð sem handritin geyma um landnámið við fornleifar sem fundist hafa á svæðinu og sjá má á Landnámssýningunni í sama húsi og varpa þannig áhugaverðu ljósi á þessa merku sögu um upphaf byggðar í Reykjavík. Hönnuður sýningarinnar er Gabríela Friðriksdóttir grafískur hönnuður er Atli Hilmarsson og hönnuður margmiðlunar Phoebe Jenkins.
Landnámssýningin & Landnámssögur - arfur í orðum Aðalstræti 16, 101 Reykjavík Opið daglega 09:00-20:00