Á þjóðhátíðardeginum 17. júní útnefndi Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra Borgarlistamann Reykjavíkur 2015 í Höfða. Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Elsa Yeoman formaður menningar- og ferðamálaráðs gerði grein fyrir vali ráðsins á borgarlistamanni. Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé og Ásgerður Júníusdóttir og Jónas Sen fluttu tónlistaratriði.
Kristín Jóhannesdóttir á einkar farsælan feril sem leikstjóri kvikmynda, sjónvarpsmynda, sviðsverka í leikhúsi og útvarpsleikrita auk þess að vera handritshöfundur og framleiðandi kvikmynda. Sérstakur stíll og listræn nálgun Kristínar hefur jafnan vakið athygli. Næsta verkefni Kristínar er kvikmynd í fullri lengd ALMA sem tekin verður upp í haust og er Kristín bæði handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndarinnar.
Kristín hefur verið virkur þátttakandi í uppbyggingu kvikmyndasviðs á Íslandi og hefur kvatt sér eftirminnilega hljóðs á liðnum árum til að vekja athygli á skertum hlut kvenna í framlagi til kvikmyndagerðar. Hún hefur gengt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir kvikmyndagerðarmenn innan lands og utan, setið í stjórn fagfélaga og samtaka þeirra, stundum sem formaður, auk þess að taka þátt í stofnun nokkurra þeirra. Þá hefur hún setið í inntökunefndum og dómnefndum leiklistarskóla og kvikmyndahátíða. Hún situr nú í stjórn WIFT (Women in Film and Television) og hefur verið formaður dómnefndar Norrænu kvikmyndaverðlaunanna frá 2013.
Kristín hefur leikstýrt fjölda leikverka við góðan orðstí bæði í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Stúdentaleikhúsinu, Nemendaleikhúsi Leiklistarskólans, Listaháskóla Íslands og fyrir sjálfstæðu leikhúsin. Einnig leikstýrði hún óperunni Tunglskinseyjunni sem frumflutt var í Peking og sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Kristín hefur leikstýrt fjölda verkefna í útvarpi, annast bæði leikstjórn og handrit stuttmynda, sjónvarpsmynda og myndbanda, skrifað kvikmyndahandrit fjögurra leikinna mynda auk þekktustu kvikmynda hennar í fullri lengd, Á hjara veraldar (1983) og Svö á jörðu sem á himni (1992) sem hún jafnframt leikstýrði.
Kristín stundaði nám í bókmenntafræði (License ès lettres) og kvikmyndafræði í Montpellier og París og lauk þaðan maîtrise og DEA (f.hl. doktorsgráðu) í kvikmyndafræðum. Hún lauk ennfremur lokaprófi frá CLCF í kvikmyndaleikstjórn.
Kristín hefur áður hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína. Hún hlaut viðurkenningu úr Menningarsjóði SPRON 1998 fyrir framlag sitt til leikhúss og kvikmynda, leiklistarverðlaun DV fyrir sviðsetningu á Svörtum hundi prestsins 2011 og Grímuverðlaunin f. leikstjórn, Utan gátta 2009. Kvikmyndin Svo á jörðu sem á himni var valin til sýninga á upp undir þrjátíu kvikmyndahátíðum, m.a. Cannes 1992 og hefur hlotið ein tólf verðlaun. Þrjár sýningar í leikstjórn Kristínar í vetur hlutu samtals 11 tilnefningar til Grímuverðlaunanna – íslensku leiklistarverðlaunanna 2015, Endatafl eftir Samuel Beckett, Segulsvið eftir Sigurð Pálsson og útvarpsleikritið Blinda konan og þjónninn eftir Sigurð Pálsson sem hlaut verðlaunin útvarpsverk ársins.