Reykvíkingum gefst kostur á því í dag að prófa rafræna kosningakerfið sem notað verður í íbúakosningum sem hefjast þriðjudaginn 17. febrúar.
Allir sem orðnir eru 16 ára og eiga lögheimili í Reykjavík geta kosið. Slóðin inn á kosningavefinn er https://kjosa.betrireykjavik.is
Mikilvægt er að sem flestir prófi kerfið áður en hinar raunverulegu kosningar hefjast, þriðjudaginn 17. febrúar. Kosið er um allt að 20 verkefni í tíu hverfum Reykjavíkur. Til þess að geta kosið þurfa kjósendur að hafa fengið sér rafræn skilríki, þau sömu og notuð eru í leiðréttingunni og í heimabönkum svo dæmi sé tekið, eða Íslykil sem tugþúsundir hafa fengið sér.
Þegar auðkenning hefur átt sér stað geta kjósendur valið sér hverfi til að kjósa í og valið verkefni upp að ákveðinni upphæð sem er sú fjárúthlutun sem Reykjavíkurborg hyggst eyða á þessu ári í hugmyndir frá íbúum. Allt að 20 hugmyndir eru á verkefnalista hvers hverfis.
Reykjavíkurborg heldur á þessu ári rafrænar íbúakosningar í fjórða sinn um betri hverfi. Úthlutað er 300 milljónum til að framkvæma valin verkefni sem íbúar hafa komið með hugmyndir að í hverfum borgarinnar. Kosningarnar eru bindandi og verða þau verkefni framkvæmd sem ná kosningu í hverfum borgarinnar.
Hinar eiginlegu kosningar hefjast á miðnætti 17. febrúar og standa yfir til miðnættis 24. febrúar.
Reykjavíkurborg hvetur alla til að nýta atkvæði sitt.