Klettaborg fagnar 25 ára afmæli

Skóli og frístund

""

Leikskólinn Klettaborg í Grafarvogi fagnar aldarfjórðungsafmæli í dag með útihátíð og grillveislu. 

Afmælishátíðin hófst strax fyrir hádegi í Klettaborg og stendur hún í allan dag. Foreldrafélagið býður börnum í hoppukastala enda veður til að njóta útivistar. Í hádeginu fengu börnin grillaðar pylsur sem þau borðuðu úti í góða veðrinu. kl. 15.00 er fjölskyldum barnanna boðið til afmælishátíðar, en þá sýna börnin dans og kórinn syngur og allir fá afmælisköku.