Kjarnorkusaga Hiroshima

Mannlíf Menning og listir

""

Haldnir verða tveir opnir fundir á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands í samstarfi við Reykjavíkurborg og Japansk- íslenska félagið þar sem hin japanska Yumie Hirano mun halda fyrir lestur undir yfirskriftinni Kjarnorkusaga Hiroshima. Fundirnir verða haldnir dagana 27. og 28. september nk.

Yumie Hirano er talsmaður eftirlifenda kjarnorkuárásarinnar á Hiroshima í seinni heimstyrjöldinni og mun hún halda fyrirlestur um eftirmála árásarinnar í Hiroshima. Yumie ferðast um heiminn og deilir reynslu fórnarlambanna frá Hiroshima og útskýrir hryllinginn á bakvið notkun kjarnorkuvopnanna á Japan. Nú er stödd á Íslandi og ætlar að halda fyrirlestra á Borgarbókasafni Reykjavíkur og í Háskóla Íslands. 

Eftirlifendur kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki í seinni heimstyrjöldinni eru kallaðir hibakusha á japönsku. Yumie hefur tileinkað sér að tala gegn notkun kjarnorkuvopna og koma í veg fyrir að fleiri hibakusha fórnarlömb verði til í heiminum. Eftirlifendur kjarnorkuárásanna hafa í áratugi miðlað frásögnum sínum, um atburðarás árásanna, til yngri kynslóða en í dag mun Yumie koma fyrir hönd þeirra og segja frá.

Fyrirlestrarnir verða haldnir sem hér segir:

• Sunnudaginn, 27. september, 15:00-16:00 á Bókatorgi í Borgarbókasafninu

• Mánudaginn 28. september, 11:35-12:25 á Háskólatorg herbergi 101, The University of Iceland

Allir áhugasamir eru hvattir til þess að koma og hlusta á frásögn Yumie.

Sjá viðburð á Facebook