Kassabílarallý á Ingólfstorgi

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Hið árlega kassabílarallý Frostaskjóls verður haldið á Ingólfstorgi á morgun, föstudaginn 22. maí kl. 14.30. Það verður sannkallað dúndurfjör á torginu og eru allir hvattir til að koma og fylgjast með í góða veðrinu.

Frístundaheimili Frostaskjóls í Vesturbænum hafa allt frá því vorið 2005 haldið árlegt kassabílarallý á Ingólfstorgi. 

Á morgun, föstudaginn 22. maí kl. 14.10 munu 550 börn ganga fylktu liði í lögreglufylgd frá Skólavörðuholti niður Skólavörðustíg og Bankastræti, inn eftir Austurstræti og að Ingólfstorgi, þar sem viðburðurinn á sér stað.  Keppni í kassabílarallý hefst síðan á milli kl. 14.30 - 15.00.

Frístundaheimilin keppa um ýmsa eftirsóknarverða titla, svo sem hraðskreiðasta bílinn, flottasta bílinn og besta stuðningsliðið og þegar börnin hafa látið ljós sitt skína keppa starfsmenn um það hvar snörustu starfsmennirnir starfa. Að lokum standa allir uppi sem sigurvegarar og fá farandbikar með sér heim í hérað.

Að keppni og verðlaunaafhendingu lokinni mun Ingó veðurguð leiða fjöldasöng og almenna gleði á Ingólfstorgi, en áætlað er að öllu verði lokið rétt fyrir klukkan fjögur.

Meginmarkmiðið með kassabílarallýinu er að skapa almennan vettvang fyrir gleði og ánægju og setja endapunktinn á vel heppnað vetrarstarf frístundaheimila Frostaskjóls.

Er engu logið þótt fullyrt sé að bærinn verði bókstaflega rafmagnaður af jákvæðni og stemmingu þegar börnin mæta á svæðið. Því ætti enginn af vera svikinn af því að koma og fylgjast með ósvikinni gleðinni.

Eitt af markmiðum keppninnar er að þjálfa börnin í lýðræðislegum vinnubrögðum en þau þurfa m.a. að velja fulltrúa úr hópunum til að keppa fyrir hönd frístundaheimilisins auk þess sem þau skipta á milli sín mörgum öðrum verkum, svo sem því að hanna og smíða kassabíl, hanna fána, hristur og skraut fyrir stuðningsliðið og koma með hugmyndir að búningum og hvatningarópum.

Allir hafa síðan hlutverk með því að koma fram sem verðugir fulltrúar síns frístundaheimilis í göngunni og á viðburðinum sjálfum auk þess að hvetja sitt lið drengilega til dáða. Þannig eiga öll börnin hlutdeild í viðburðinum og leggja sitt af mörkum við að gera daginn eftirminnilegan fyrir sig og aðra.