Kampur færir sig um set

Skóli og frístund

""

Frístundamiðstöðin Kampur, sem þjónar Miðborg og Hlíðum, hefur flutt heimkynni sín stærri og betri aðstöðu, á aðra hæðina að Þverholti 14. 

Í Þverholti 14 eru rúmgóð húsakynni fyrir starfsfólk og framtíðarstarfsemi frístundamiðstöðvarinnar, s.s. alls slags hópa- og klúbbastarf.

Frístundamiðstöðin Kampur rekur frístundaheimilin Eldflaugina við Hlíðaskóla, Draumaland við Austurbæjarskóla og Halastjörnuna við Háteigsskóla. Einnig félagsmiðstöðvarnar 105, Gleðibankann og 100og1.  Kampur er jafnframt þekkingarmiðstöð vegna frístundastarfs barna með annað móðurmál en íslensku og hefur meðal annars gefið út bæklinga á níu tungumálum um mikilvægi frístundastarfs fyrir börn og ungmenni.



Með nýrri og betri aðstöðu opnast möguleikar á því að auka enn við starfsemina með virkri þátttöku barna og ungmenna í fjölbreyttum verkefnum.