Jólatónleikar skólahljómsveitar Austurbæjar

Skóli og frístund

""
Í kvöld verða lúðrarnir þeyttir í Langholtskirkju en 120 nemendur taka þátt í jólatónleikum skólahljómsveitarinnar. 
Allar sveitir skólahljómsveitarinnar; A, B og C eða um 120 nemendur taka þátt í tónleikunum sem hefjast í Langholtskirkju klukkan átt.  Efnisskráin er fjölbreytt með örlitlum jólaglaðningi. Meðal efnis eru skoskir dansar, grísk þjóðlög, popp, lög úr Myndir á sýningu eftir Moussorgsky og Finale úr 9. sinfoníu Dvorák.



Skólahljómsveit Austurbæjar er ein af fjórum skólahljómsveitum í Reykjavík. Hún hefur aðsetur í Laugarnesskóla en kennarar eru í flestum skólum hverfisins. Samstarf er viðTónskóla Sigursveins og Tónmenntaskóla Reykjavíkur og þaðan koma líka nemendur í hljómsveitina. Stjórnandi er Vilborg Jónsdóttir.