Það er alveg tilvalið fyrir fjölskylduna að fara í Jóladalinn og skemmta sér saman. Margt er í boði og vel gæti farið svo að jólakötturinn láti sjá sig því hann er einmitt í Jóladalnum.
Húsdýra og fjöldskyldugarðurinn er opinn alla daga ársins, þó er opnunartíminn aðeins styttur á aðfangadag, jóladag, gamlársdag og nýarsdag þegar opið er frá kl. 10 – 12 og lokað í kaffihúsinu en aðra daga er opið frá 10 til 17 og opið í kaffihúsinu. Öll dýrin í garðinum eru komin í jólaskap og hreindýrin eru í essinu sínu. Í garðinum hefur verið útbúið harðlæst athvarf þar sem jólakötturinn getur hvílt lúin bein en fyrir síðustu jól voru nokkur læti í honum þar sem hann lá í fleti sínu. Hann olli einnig nokkrum usla á næturbrölti sínu um Laugardalinn.
Frá og með 19. desember verður Skautahöllin opin frá kl. 13-18 alla daga. Opið verður á Þorláksmessu frá 12-16 en lokað á aðfangadag og jóladag. Opið á milli jóla og nýárs. Nánari upplýsingar um opnunartíma í desember er að finna á www.skautaholl.is
Í Grasagarðinum verður fallegt um að litast og tilvalið að fá sér góðan göngutúr. Kaffihúsið Flóran verður opin allar helgar fyrir jól með heitt kakó og ljúfar jólaveitingar að hætti Marentzu. Þar má líka búast við skemmtilegum uppákomum allar aðventuhelgarnar. Einnig er Flóran með jólahlaðborð öll fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld fram að jólum, sjá nánar á www.floran.is
Tilvalið að skella sér svo í sund í Laugardalslaug eftir að hafa gengið um Jóladalinn. Taka hressandi sundsprett eða slaka á í heitu pottunum. Opið mánudaga til fimmtudaga frá 6.30 til 22.00 um helgar frá 8.00 til 22.00. Lokað 25. desember. Nánari upplýsingar á www.laugardalslaug.is
Endilega kíkið á fjölbreytt úrval viðburða á jolaborgin.is