Jóga og gongslökun í náttúrunni

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Það er end­ur­nær­andi að stunda jóga í hress­andi sjáv­ar­loft­inu í Viðey með fagra fjalla­sýn­ allt um kring. Þriðju­dags­kvöldið 21. júlí fáum við til okkar Arnbjörgu Kristínu Konráðsdóttur til þess að leiða göngu um eyj­una þar sem verður stoppað á völdum stöðum og gerðar styrkj­andi jógaæf­ingar undir beru lofti. Við endum göng­una með slökun hjá Friðarsúlunni undir hinum mögn­uðu tónum gongsins.

Gongslökun nýtur sívax­andi vin­sælda en heilandi tónar þessa hljóð­færis hjálpa okkur kyrra hug­ann og ná djúpslökun.

Siglt verður frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15 en gangan hefst kl. 19.30. Það er upp­lagt fyrir þá sem vilja fá sér léttan kvöld­verð í Viðeyjarstofu fyrir göngu að taka fyrri ferj­una. Göngunni lýkur við Viðeyjarstofu og munu gestir hafa tíma til þess að kaupa sér veit­ingar áður en bát­ur­inn siglir heim kl. 22.00.

Þátt­tak­endur eru beðnir um að koma klæddir eftir veðri og í góðum skóm. Gott er að hafa með sér vatns­brúsa en ekki þarf að taka með sér jóga­dýnur. Þátt­tak­endur á öllum aldri eru vel­komnir og ekki er nauð­syn­legt að hafa stundað jóga áður.

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir er reyndur kundal­ini jóga­kenn­ari og kennir bæði börnum og full­orðnum. Hún býður upp á gong­heilun, jóga fyrir barns­haf­andi konur, jóga í sundi og er bowen tæknir. Hún gaf út bók­ina Hin sanna nátt­úra árið 2013. Bókin vísar veg­inn að fal­legum stöðum í nátt­úr­unni til þess að stunda jóga og hug­leiðslu og þar má meðal annarra staða finna Viðey.