Fimmtíu og átta reykvískir grunnskólanemar tóku við Íslenskuverðlaunum unga fólksins í bókmenntaborginni Reykjavík í dag.
Venju samkvæmt voru Íslenskuverðlaunin afhent á Degi íslenskrar tungu og fór athöfnin fram í Norðurljósasal Hörpu.
Verndari verðlaunanna, frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, flutti ávarp við athöfnina og afhenti stoltum grunnskólanemendum verðlaunin ásamt Mörtu Guðjónsdóttur formanni nefndar um verðlaunin og Ragnari Hanssyni fulltrúa í skóla- og frístundaráði. Þá fluttu nemendur í Austurbæjarskóla stemmur við texta Þórarins Eldjárns og sýnd var stuttmyndin Leiði sem varð til á námskeiðinu Stelpur filma! nú í haust.
Íslenskuverðlaununum er ætlað að auka áhuga grunnskólanema í Reykjavík á íslenskri tungu og hvetja þá til framfara í tjáningu í töluðu og rituðu máli. Meðal verðlaunahafa voru ungir lestrarhestar, tvítyngdir nemendur sem hafa náð góðum tökum á íslensku á skömmum tíma, smásagnahöfundar og ljóðskáld.
Verðlaunagripinn, Þröstinn góða, hannaði Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir. Til hamingju allir handhafar þessa fallega verðlaunagrips!