Íslensku keppendunum gengur vel á Smáþjóðaleikunum

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Ísland hefur tryggt sér 79 verðlaun, þar af 25 gull, 33 silfur og 22 brons. Lúxemborg hefur tryggt sér 51 verðlaun þar af 23 gull, 14 silfur og 14 brons. Kýpur er í þriðja sæti með 14 gull, 7 silfur og 12 brons.

Alls vann Ísland til sjö gullverðlauna í gær auk þess að næla sér í sjö silfurverðlaun og fern bronsverðlaun. Aníta Hinriksdóttir vann gull í 1500 m hlaupi.

Guðni Valur Guðnason vann kringlukast karla. Guðni Valur kom verulega á óvart því þessi nítján ára kappi er nýbyrjaður að æfa greinina.

Hin fimmtán ára gamla Þórdís Eva Steinsdóttir vann gull í 400 m hlaupi og er að stíga sín fyrstu skref á stórmóti en hún hefur slegið fjölda meta í yngri aldursflokkum.

Arnar Pétursson fékk gull í 3000 m hindrunarhlaupi, Kristinn Torfason í langstökki, Ívar Kristinn Jasonarson í 400 m grindarhlaupi og Arna Stefanía Guðmundsdóttir í 400 m grindarhlaupi.

Íslendingar eru efstir á verðlaunatöflunni á fimmta degi Smáþjóðaleikanna.  Alls keppa níu þjóðir á mótinu í ellefu greinum. Leikunum lýkur á morgun.

Fylgjast má með úrslitum á heimasíðu Smáþjóðaleikanna og á Facebooksíðu Smáþjóðaleikanna.