Í vetur var haldin Norræn verðlaunasamkeppni um sjálfstætt líf á vegum Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Frumkvöðlar hvaðanæva að frá Norðurlöndunum sendu inn 414 hugmyndir að lausnum um hvernig aldraðir og fatlaðir geti lifað sjálfstæðu lífi. Þar af áttu Íslendingar 63 tillögur.
Norræna nýsköpunarmiðstöðin stendur að keppninni auk Reykjavíkurborgar, Osló, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Helsinki.
Um helgina hittust í vinnnusmiðju í Kaupmannahöfn þátttakendur sem áttu þær 75 hugmyndir sem komust áfram í keppnina. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, tók þátt í umræðum fyrir hönd Reykjavíkur.
Níu Íslendingar eiga fjórar hugmyndir sem valdar voru til frekari úrvinnslu. Halldór Axelsson, Þorsteinn Ingi Sigfússon og Víðir Stefánsson eiga hugmynd sem ber heitið Þjónninn (The Butler), Helga J. Bjarnadóttir og Þórdís Harðardóttir eiga hugmynd sem heitir Ylgarðurinn (Thermal winter garden), Jóhanna F. Sigurjónsdóttir og Ósk Sigurðardóttir sendu inn hugmynd sem heitir Lipur ferðalangur (Agile Traveller) og að lokum eiga Stefán E. Hafsteinsson og Einar Kvaran hugmyndina Leiðin til samstarfs (The road to collaboration). Þátttakendur fengu tækifæri til að hittast og skiptast á hugmyndum og mynda þverfagleg tengsl milli landa.
25 hugmyndir verða valdar áfram til frekari þróunar og vonandi verður íslenskt verkefni meðal þeirra. Vinningshafinn í keppninni fær 17 milljón króna verðlaun til að þróa sína lausn auk þess sem sérstök verðlaun verða veitt fyrir samvinnu milli landa, eða 3,4 milljónir og tæplega 2 milljónir í nemendaverðlaun.
Markmið keppninnar er að Norðurlöndin taki forystu í að þróa lausnir í velferðarþjónustu og að þær séu á heimsvísu.