Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 2. júní 2015.
Efni: Innköllun á víni vegna möguleika á aðskotahlutum (gleragnir).
Globus hf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum tvær tegundir af víni frá vínframleiðandanum Distell í Suður-Afríku.
Um er að ræða vínin Fleur du Cap Chardonnay með framleiðslunúmer LB130I14 og LB127H14 og Drostdy Hof Chardonnay með framleiðslunúmer LB125H14 og LB108L14.
Innköllunin er gerð að beiðni Distell en við hefðbundið gæðaeftirlit fundust örsmáar gleragnir í flösku. Var framleiðslugallinn einangraður við lítinn hluta átöppunar við tiltekna átöppunarlínu.
Samkvæmt upplýsingum frá Distell er það niðurstaða sérfræðinga að agnirnar séu hættulausar og um sé að ræða 0,01% af þeim átöppunum sem við á. Engu að síður hefur verið tekin ákvörðun um að gæta fyllstu varúðar og innkalla allar flöskur með fyrrnefnd framleiðslunúmer.
Framleiðslunúmer má sjá á gráum borða á miða á bakhlið flöskunnar.
Þeir neytendur sem hafa keypt flöskur af þessum vínum með fyrrnefnd framleiðslunúmer eru beðnir um að hafa samband við Globus, umboðsaðila Distell á Íslandi, Skútuvogi 1F, sími 522 2500.