Innköllun á Santa Maria kryddblöndum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á ákveðnum tegundum af Santa Maria kryddblöndum sem innihalda snefilmagn af möndlum. 

Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á ákveðnum tegundum af Santa Maria kryddblöndum sem fyrirtækið hefur flutt inn til Íslands vegna þess að þær geta innihaldið snefilmagn af möndlum.  Möndlur eru ekki tilgreindar í listum yfir innihaldsefni matvælanna.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

 

Hnetur (s.s. möndlur) og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim. 

Viðskiptavinir sem keypt hafa umræddar vörur og eru viðkvæmir fyrir hnetum (s.s. möndlum) og afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta þeirra ekki og farga eða skila vörunum til þeirrar verslunar þar sem þær voru keyptar.  Frekari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í gegnum síma 530 5600 eða netfangið gaedastjori@adfong.is.