Innköllun á Kötlu glassúr

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Innköllun á Kötlu glassúr bleikur og Kötlu glassúr súkkulaði vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (afurð úr eggjum).

Katla matvælaiðja ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað tvær tegundir af glassúr vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (eggjaduft).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti: Glassúr bleikur.

Strikanúmer:  5690591123117.

Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.

Nettóþyngd: 100 ml.

Framleiðandi: Katla.

Framleiðsluland: Ísland.

Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir.

Vöruheiti: Glassúr súkkulaði.

Strikanúmer:  5690591123100.

Best fyrir: Allar best fyrir dagsetningar.

Nettóþyngd: 100 ml.

Framleiðandi: Katla.

Framleiðsluland: Ísland.

Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir.

Egg og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir eggjum og afurðum úr þeim. 

Viðskiptavinum, sem hafa verslað vöruna og eru viðkvæmir fyrir eggjadufti, er bent á að hægt er að skila henni til Kötlu, Kletthálsi 3, 110 Reykjavík, milli kl. 8 og 16 alla virka daga.