Innköllun á hökkuðum heslihnetum

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

1912 ehf.  hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað tvær vörutegundir af hökkuðum heslihnetum þar sem að aflatoxín (eitur myglusvepps) mældist yfir viðmiðunarmörkum í hráefninu sem notað er í framleiðslunni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Hagver; Líf.

Vöruheiti:  Heslihnetur hakkaðar.

Strikanúmer:  5690582134993 (Hagver), 5690595089532 (Líf).

Best fyrir:  23.12.2015.

Nettóþyngd:  100 g.

Pökkunaraðili:  Gott fæði, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík. 

Dreifingaraðili:  Nathan & Olsen hf.,  Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.

Upprunaland:  Tyrkland.

Dreifing:  Verslanir um land allt.

Þeim sem keypt hafa þessar vörur er bent á að neyta þeirra ekki og farga eða skila þeim til Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.