Innköllun á First Price naan-brauði vegna myglu

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Kaupás ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað þrjár tegundir af First Price naan-brauði vegna myglu.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  First Price.

Vöruheiti:  Naanbrød, Naanbrød hvidløgssmag og Mini naanbrød hvidløgssmag.

Strikanúmer:  7311041077856, 7311041074251 og 7311041074459.

Umbúðir: Plastpokar.

Nettómagn:  2 brauð í poka / 260 g.  4 brauð í poka / 232 g (mini naan-brauð).

Best fyrir:  Allar „best fyrir“ dagsetningar.

Framleiðsluland:  Bretland.

Dreifing:  Verslanir Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals um land allt.

  

Þeir neytendur sem eiga umræddar vörur eru beðnir um að skila þeim í þeirri verslun þar sem þær voru keyptar.