Innköllun á dökku súkkulaði

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Kaupás ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla frá neytendum súkkulaðið Dark Chocolate with Coffee frá Chocolate and Love þar sem aðskotahlutur fannst í einu súkkulaðistykki.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Chocolate and Love.

Vöruheiti:  Coffee 55% - Dark Chocolate with Coffee.

Strikanúmer:  5060270120032.

Nettómagn:   100 g.

Best fyrir:  17.04.2016.

Framleiðsluland:  Sviss.

Innflytjandi:  Kaupás ehf., Skarfagörðum 2, 104 Reykjavík.

Dreifing: Verslanir Krónunnar og Nóatúns um land allt.

Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila henni í viðkomandi verslun. Hér að neðan má sjá ljósmynd af umræddu súkkulaði.