Innköllun á Casa Fiesta Taco Seasoning Mix

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Efni:  Innköllun á Casa Fiesta Taco Seasoning Mix kryddblöndu þar sem hún getur innihaldið snefilmagn af möndlum.

Ó. Johnson & Kaaber ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað Casa Fiesta Taco Seasoning Mix kryddblöndu vegna þess að hún getur innihaldið snefilmagn af möndlum.  Möndlur eru ekki tilgreindar í lista yfir innihaldsefni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Casa Fiesta.

Vöruheiti:  Taco Seasoning Mix.

Strikanúmer:  8715186812225.

Best fyrir:  09.07.2017 og 27.07.2017.

Nettóþyngd:  35 g.

Framleiðandi:  Santa Maria AB.

Framleiðsluland:  Svíþjóð.

Dreifing:  Verslanir um land allt.

Hnetur (s.s. möndlur) og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda.  Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.  Tekið skal fram að vörurnar eru skaðlausar þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum og afurðum úr þeim. 

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum (s.s. möndlum) og afurðum úr þeim eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga eða skila til Ó. Johnson & Kaaber ehf., Tunguhálsi 1, gegn bótum.  Frekari upplýsingar fást hjá Ó. Johnson & Kaaber ehf.