Íbúar í Hlíðum leggja til hugmyndir fyrir 85,4 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Þar á meðal er fræðsluskilti um stríðsminjar í Öskjuhlíð og sögu bújarða í hverfinu.
Meðal annarra verkefna sem íbúar vilja láta kjósa um í hverfinu er að setja upp frísbígolfvöll í Öskjuhlíð, hjólabrettaramp á Klambratúni og boltaleikjaflöt á milli Grænuhlíðar og Hamrahlíðar. Þetta eru einungis fimm af tuttugu verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betri hverfi 2015.
Þau tuttugu verkefni sem kosið verður um eru metin á rúmlega 85 milljónir króna en til framkvæmda eru 26 milljónir króna í hverfapotti Hlíða.
Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.