Íbúar í Háleitis- og Bústaðahverfi vilja fegra hverfið

Betri hverfi

""

Íbúar í Háaleiti og Bústöðum leggja til hugmyndir fyrir rúmar 72 milljónir í hverfakosningunum Betri hverfi 2015. Meðal verkefna er áningarstaður fyrir skokk- og hjólahópa á horni Traðarlands, laga og fegra svæðið milli Ásenda, Básenda og Garðsenda auk þess að fegra svæðið á milli Heiðargerðis og Hvammsgerðis.

Aðrar hugmyndir sem lagðar eru fram í hverfinu eru að gróðursetja tré við Háaleitisbraut frá Lágmúla að Ármúla og setja upp hundagerði neðan við Hörgsland í Fossvogsdal. Þetta eru einungis fimm af tuttugu verkefnum sem íbúar geta kosið um í Betri hverfi 2015.

Þau tuttugu verkefni sem kosið verður um eru metin á rúmar 72 milljónir króna en til framkvæmda eru 34 milljónir króna í verkefni í Háaleitis- og Bústaðahverfi.

Rafrænar íbúakosningar um verkefni í hverfum borgarinnar hefjast  þriðjudaginn 17. febrúar í næstu viku og standa yfir til miðnættis þriðjudaginn 24. febrúar. Til að kjósa þarf að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum eða Íslykli og kemst þá kjósandinn inn í rafrænan kjörklefa. Kerfið er afar einfalt í notkun. Aldurstakmark í kosningunum er 16 ár.

Sjá verkefni í Háaleiti og Bústöðum.