Hvað ungur nemur

""

Nú á vordögum hafa nokkrar unglingsstúlkur í Hagaskóla verið að vinna verkefni um Heimstyrjöldina síðari.

Til þess að fá sem gleggsta mynd af lífi Íslendinga á þessum víðsjárverðu tímum komu þær í Félagsmiðstöðina á Aflagranda 40 og tóku viðtöl við fólk sem mundi þessa tíma vel. Þær urðu margs vísari og verkefnið þeirra mun án efa verða þeim til mikils sóma, auk þess sem  viðtölin veittu viðmælendunum ánægju af því að miðla fróðleik milli kynslóða.