Hluti úr Berlínarmúrnum settur upp við Höfða

Mannlíf Menning og listir

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók formlega við hluta úr Berlínarmúrnum í dag. Um er að ræða gjöf frá listamiðstöðinni Neu West Berlin í Berlín.  Dagur þýskrar einingar (Tag der Deutschen Einheit), 3. október, er þjóðhátíðardagur Þýskalands og í ár er jafnframt haldið upp á 25 ára afmæli endursameiningar Þýskalands.

Viðstaddir viðburðinn voru auk borgarstjóra, Tim Renner ráðuneytisstjóri menningar í Berlín, Herbert Beck sendiherra Þýskalands á Íslandi, Jan Paulus fulltrúi listamiðstöðvarinnar í Berlín og fulltrúar Samskipa sem sáu um flutninginn frá Þýskalandi til Íslands.



Verkið er ein nokkurra veggeininga sem listamiðstöðin er með til sýnis í Berlin Mitte en þær voru skreyttar af þekktum vegglistamönnum er þær voru hluti af Freedom Park Exhibition sýningunni sem efnt var til í tilefni 50 ára afmælis byggingar múrsins árið 2011. Götulistamaðurinn Jakob Wagner myndskreytti eininguna sem var hluti Berlínarmúrsins þar sem hann lá yfir Potsdamer Platz.  

 

Um veglega gjöf er að ræða sem er hluti heimssögulegra viðburða og hlaðin merkingu. Það þykir við hæfi að setja verkið upp við Höfða af sögulegum ástæðum enda hefur það aðdráttarafl í sjálfu sér og hægt að tengja það leiðtogafundinum árið 1986, sem talinn er meðal þeirra lykilviðburða er mörkuðu upphafið að endalokum Kalda stríðsins.

 

Sá hluti Berlínarmúrsins sem um ræðir er um 4 tonn að þyngd en viðlíka verk hafa verið gefin víða um heim - meðal annars eru vegghlutar staðsettir við Wende Museum í Los Angeles, við Aspen Art Museum í Colorado, við Imperial War Museum í London og við Ronald Reagan bókasafnið í Simi Valley í Kaliforníu.